U20 ára kvennalandslið Íslands tekur þátt í heimsmeistaramótinu í Kína sem hefst á morgun. Ísland er í riðli með Svartfjallalandi, Tékklandi og Bandaríkjunum. Eins og gefur að skilja beið liðsins langt og strangt ferðalag til Kína, eða alla leið til Jinzhong þar sem liðið leikur og dvelur. Ferðalagið tók rúmlega sólarhring en gekk vel að sögn Halldórs Stefáns Haraldssonar þjálfara liðsins. „Ferðalagið gekk ótrúlega vel. Þrátt fyrir ótrúlega langt ferðalag var hópurinn ekkert smá öflugur og mikil jákvæðni í hópnum. Við ferðuðumst frá Keflavík til Parísar og biðum þar í dágóðan tíma. Þaðan fórum við til Beijing sem tók rúmlega tíu klukkustundir. Þaðan flugum við svo til Jinzhong þar sem við leikum á mótinu og vorum komin þangað snemma á mánudagsmorgni á staðartíma,“ sagði Halldór. Tímamismunurinn milli Jinzhong og Íslands er átta klukkustundir. Hann segir að fyrsti dagurinn hafi verið langur og einkennst af þreytu. „Í gær tókum við síðan nokkra fundi, skoðuðum aðstæður og tókum mjög létta æfingu, aðeins til að hreyfa okkur. Það var mikil þreyta og þungir fætur í gær. Ég vona að nætursvefninn hafi jákvæð áhrif á stelpurnar og að þær vakni ferskar eftir nóttina," sagði Halldór sem segir stöðuna á hópnum góða og allir leikmenn liðsins séu líkamlega heilar og klárar í fyrsta leikinn. Ísland leikur sinn fyrsta leik á mótinu í nótt á íslenskum tíma, nánar tiltekið klukkan 03:45. Íslenska liðið þekkir vel til Svartfellska liðsins en liðin mættust á Evrópumótinu, síðasta sumar þar sem íslenska liðið þurfti að sætta sig við fimm marka tap, 36-31. Halldór segir undirbúning fyrir fyrsta leik mótsins hafa gengið vel. „Við höfum undirbúið okkur vel fyrir leikinn gegn Svartfjallalandi og stelpurnar eru duglegar sjálfar að leikgreina þær líka. Ég er með stelpurnar í teymisvinnu þar sem ég læt þær greina andstæðingana sjálfar. Við erum síðan með tvo myndbandsfundi í dag og eina æfingu sem verður lokaundirbúningurinn fyrir leikinn gegn Svartfjallalandi.“ Hann segir Svartfjallaland vera mjög sterkt lið. „Svartfjallaland var í efsta styrkleikaflokki þegar dregið var í riðla og þær eru mjög öflugar. Þær eru með sterka vinstri skyttu og frábæran vinstri hornamann. Þær eru með góðan leikstjórnanda sem getur tekið góð gólfskot og eru með alvöru dreka á línunni sem verður erfitt að stöðva." ,,Við höfum eytt miklum tíma í að horfa á síðasta leik okkar gegn Svartfjallalandi og teljum að það sé hægt að prófa eitthvað annað og sjá hvort það geti gengið. Síðan þurfum við að treysta á að okkar leikmenn séu í líkamlega betra standi en í fyrra og hafi tekið eitt skref áfram sem handboltamenn.“ Markmiðið fyrir fyrsta leikinn er skýrt. „Markmiðið á morgun er að vinna Svartfjallaland og koma á óvart strax í byrjun móts.“Þungir fætur á fyrsta degi
Alvöru dreki á línunni

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.