Danskur landsliðsmaður gengur með barn undir belti
BAMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP

Danska landsliðskonan Andrea Aagot hefur greint frá því að hún eigi von á sínu fyrsta barni.

Aagot, sem leikur með danska stórliðinu Odense Håndbold, tilkynnti gleðitíðindin á Instagram síðu sinni á dögunum.

Aagot sem er fædd árið 2000 lék sitt fyrsta stórmót með danska landsliðinu á Evrópumótinu árið 2020 og hefur síðan þá verið í harðri samkeppni um stöðu í danska landsliðinu. Á síðustu stórmótum hefur hún fengið aukið hlutverk en hún hefur ásamt danska landsliðinu unnið til þriggja verðlauna á stórmótum undanfarin ár, eitt brons og tvö silfur.

Þá hefur hún einnig verið í lykilhlutverki hjá Odense síðustu ár en hún gekk til liðs við félagið sumarið 2023.

Nú bíður hennar hins vegar nýtt og spennandi hlutverk utan handboltans, en Aagot og fjölskylda hennar undirbúa komu fyrsta barnsins sem á að koma í heiminn á nýju ár.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top