Dregið var í riðlakeppni EHF Meistaradeildar kvenna 2026/27 í Vín á föstudag og ljóst er að handknattleiksáhugafólk má búa sig undir eitt sterkasta tímabil keppninnar um árabil. Ríkjandi Evrópumeistarar Metz og silfurlið síðasta tímabils Györi verða saman í riðli og mætast því strax á ný eftir eftirminnilegan úrslitaleik í Búdapest, þar sem Metz tryggði sér sinn fyrsta Evrópumeistaratitil. Keppnisfyrirkomulagið verður óbreytt frá síðustu árum. Sextán lið leika í tveimur átta liða riðlum þar sem tvö efstu lið hvors riðils fara beint í átta liða úrslit. Liðin sem enda í 3.–6. sæti fara í umspil um hin fjögur sæti í átta liða úrslitunum en tvö neðstu liðin í hvorum riðli ljúka þar keppni. A riðill er sannkallaður "dauðariðill". Þar eru þrjú lið sem léku í átta liða úrslitum á síðasta tímabili, þar af tvö sem komust alla leið á EHF FINAL4, Brest og CSM Búkaresti. Brest kemur inn í tímabilið sem franskur meistari og undanúrslitalið Evrópu, á meðan CSM sneri aftur á EHF FINAL4 eftir átta ára bið og ætlar sér enn stærri hluti. Danska stórveldið Esbjerg verður einnig á meðal sterkustu liðanna, en liðið hefur verið fastagestur í Final4 undanfarin ár. FTC hefur á sama tíma styrkt sig verulega fyrir komandi tímabil og verður líklega eitt af þeim liðum sem berjast um efstu tvö sætin. Krim, Dortmund, Sola og Buducnost hafa öll sýnt að þau geta tekið stig af sterkustu liðunum og því má búast við afar jafnri og spennandi baráttu um sæti í útsláttarkeppninni. Mesta athyglin beinist þó án efa að B riðli þar sem úrslitaleikur síðasta tímabils verður endurtekinn. Metz og Györ eru af mörgum talin tvö sterkustu lið Evrópu um þessar mundir og innbyrðisviðureignir þeirra gætu ráðið miklu um hvort liðið tryggir sér beint sæti í átta liða úrslitum. Odense ætlar sér að blanda sér í toppbaráttuna eftir að hafa komist í úrslit árið 2025, á meðan Gloria Bistrita reynir að byggja ofan á besta tímabil í sögu félagsins þegar liðið komst í fyrsta sinn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Podravka, Storhamar og þýsku meistararnir frá Blomberg-Lippe eru öll lið sem geta skapað vandræði fyrir stærri félögin, auk þess sem Nykøbing Falster snýr aftur í Meistaradeildina með metnað til að sanna sig á stærsta sviðinu. Vegna þess að Danmörk á þrjú lið í keppninni var ekki hægt að koma í veg fyrir að tvö þeirra lentu saman í riðli. Því munu Odense og Nykøbing Falster eigast við tvisvar í riðlakeppninni. Riðlakeppnin hefst helgina 5.–6. september og verður leikin yfir 14 umferðir fram í febrúar. Þegar horft er yfir dráttinn er ljóst að vart hefði verið hægt að fá sterkari eða jafnari riðla. Nær hver einasta umferð mun bjóða upp á stórleiki og strax frá fyrstu umferð verða stig dýrmæt í baráttunni um beint sæti í átta liða úrslitum. Fyrir áhorfendur er því ljóst að Meistaradeildarveturinn 2026/27 lofar sannkölluðu handboltaveislu.A Riðill
B Riðill

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.