Markvörðurinn, Garpur Druzin Gylfason verður ekki áfram í herbúðum Fram en þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag. Þar segir að Garpur hafi komið inn í meistaraflokkshóp Fram fyrir þremur árum og hafi bætt sig jafnt og þétt síðan. ,,Eftirminnilegar eru þrjár stórkostlegar vörslur hans á stuttum tíma úti í Porto seint á síðasta ári þar sem hann stimplaði sig rækilega til leiks í Evrópukeppninni," segir í tilkynningunni frá Fram en Garpur varði mark Fram 2 í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð. ,,Garpur hefur ekki bara látið til sín taka á vellinum heldur líka utan vallar í alls kyns verkum til að hjálpa til við umgjörð leikja og liðsins. Það er mikill missir af Garpi, frábærum félagsmanni, en hann fer ekki langt og við munum fylgjast spennt með framþróun hans. Við í Fram óskum þér alls hins besta og gangi þér gífurlega vel í nýju liði," segir ennfremur. Samkvæmt heimildum Handkastsins er Garpur á leið í Fjölni í Grill66-deildinni og fyllir þar skarð sem Bergur Bjartmarsson skilur eftir sig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.