Annar sigur í Færeyjum á jafn mörgum dögum
HSÍ

Íslenska drengja landsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri lék í dag seinni leik sinn af tveimur í Færeyjum um helgina en þjóðirnar eru í fullum undirbúningi fyrir Evrópumótið sem hefst um miðjan júlí.

Eftir góðan sigur á færeyska liðinu í gær hélt íslenska liðið uppteknum hætti í dag og vann fimm marka sigur 30-25 eftir að það færeyska hafi leitt í hálfleik 15-13.

Elís Þór Aðalsteinsson var markahæstur í liði Íslands í leiknum í dag með sjö mörk og Stefán Magni Hjartarson skoraði fjögur.

Jens Sigurðarson stóð í marki Íslands í leiknum og varði 8 skot, eða 33% markvörslu.

,,Íslenska liðið lék afar vel í síðari hálfleik og snéri leiknum sér í vil með vel útfærðum 5-1 varnarleik og hnitmiðuðum sóknarleik," segir í umfjöllun HSÍ um leikinn.

Mörk Íslands: Elís Þór Aðalsteinsson 7, Stefán Magni Hjartarson 5, Ágúst Guðmundsson 4, Jens Bragi Bergþórsson 4, Harri Halldórsson 3, Jökull Blöndal 3, Bessi Teitsson 2, Andri Erlingsson 1, Birgir Leó Stefánsson 1.

Varin skot: Jens Sigurðarson 8 skot (33,3%)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top