Gústi var duglegur að hringja á öllum stundum sólarhringsins
Valur Handbolti

Línumaðurinn Tjörvi Týr Gíslason er kominn aftur í raðir uppeldisfélags síns Vals eftir tveggja ára dvöl í þýska handboltanum. Á þeim tíma lék hann fyrst með Bergischer, sem tryggði sér sæti í þýsku úrvalsdeildinni, og á síðustu leiktíð með Oppenweiler/Backnang sem féll úr B-deildinni eftir afar erfitt tímabil.

Tjörvi segist vera spenntur fyrir endurkomunni á Hlíðarenda og hlakkar til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu Íslands- og deildarmeistara Vals Vals.

„Tilfinningin er góð. Hópurinn er vel mannaður og það verður spennandi að byggja ofan á árangurinn frá síðasta tímabili. Hópurinn er töluvert breyttur frá því ég var hér síðast og það verður gaman að koma inn í það mengi. Það skemmir heldur ekki fyrir að Gústi er með gott teymi í kringum sig,“ sagði Tjörvi.

Þrátt fyrir að heimkoma hafi ekki verið efst á óskalistanum segist hann hafa metið Val sem besta kostinn þegar upp var staðið.

„Ég var í viðræðum við lið úti og mest spennandi valkosturinn fyrir mig var liðið sem spilar í Evrópudeildinni – sem reyndist vera Valur. Heimkoma var mér ekkert endilega efst í huga en ég vil auðvitað spila þar sem er best fyrir mig hverju sinni.“

Síðasta tímabil reyndist Tjörva erfitt. Oppenweiler/Backnang vann aðeins einn leik í þýsku B-deildinni og féll að lokum niður um deild.

„Tímabilið með HCOB var algjörlega ný upplifun fyrir mig. Í hreinskilni sagt var meira af því slæma en því góða. Það er berskjaldandi ferli að tapa svona mörgum leikjum í röð og sjá ekkert ganga upp í kringum sig. Samt felst í því lærdómur sem fæst ekkert endilega í velgengni og fyrir það finn ég ákveðið þakklæti.“

Nú tekur við nýr kafli hjá ríkjandi Íslands- og deildarmeisturum Vals, sem munu leika í Evrópudeildinni á komandi tímabili. Tjörvi segist hlakka mikið til að spreyta sig á ný á Evrópusviðinu.

„Mér líst auðvitað mjög vel á framhaldið og tel Evrópudeildina vera rökrétt næsta skref fyrir þennan hóp. Það eru komin nokkur ár síðan ég var síðast í Evrópudeildinni og það hefur dvalið í manni síðan að gera betur en þá. Til þess er mikil vinna fram undan og það fær mann bara til að hlakka til.“

Þjálfarinn Ágúst Þór Jóhannsson lagði sitt af mörkum við að sannfæra Tjörva um að snúa aftur á Hlíðarenda.

„Gústi var duglegur að hringja á öllum stundum sólarhringsins til að selja mér þetta, en auðvitað er hann með vöru sem selur sig sjálf. Af því sem ég heyri og af mínum samskiptum við hann er ég bara spenntur að fara af stað inn í þetta tímabil.“

Þótt hann hafi verið búsettur í Þýskalandi segist Tjörvi hafa fylgst ágætlega með gömlu félögunum og íslenska handboltanum.

„Það var skemmtilegt að stíga aðeins út fyrir og fylgjast með handboltanum sem áhorfandi. Ég horfði af og til á leiki með Val þegar tími gafst til. Ég fylgdist hins vegar vel með í bikarnum og úrslitakeppninni og fyrir Valsara var virkilega gaman að sjá fullt hús í oddaleiknum.“

Endurkoma Tjörva styrkir Valsliðið enn frekar fyrir komandi verkefni, þar sem félagið stefnir á að verja bæði Íslands- og deildarmeistaratitilinn auk þess að láta að sér kveða í Evrópudeildinni. Tjörvi er annar línumaðurinn sem gengur í raðir Vals en áður hafði félagið fengið Jón Ásgeir Eyjólfsson frá Stjörnunni.

Þorvaldur Örn Þorvaldsson hefur hinsvegar yfirgefið Val og leikur í Póllandi á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top