Leikirnir í Færeyjum var fín æfing fyrir EM
HSÍ

U20 ára karlalandslið Íslands vann tvo vináttulandsleiki gegn Færeyjum um helgina í undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið í Rúmeníu sem hefst í næstu viku. Ágúst Jóhannsson, þjálfari liðsins, var ánægður með margt sem hann sá í leikjunum en segir jafnframt að enn sé svigrúm til að bæta leik liðsins áður en haldið verður á mótið.

„Leikirnir í Færeyjum var fín æfing fyrir okkur fyrir það sem koma skal. Þetta voru fyrstu leikirnir sem ég stýri með þetta lið og margt sem var fínt. Varnarleikurinn var á stórum köflum mjög góður, bæði 6-0 og 5-1 vörnin okkar, og þá sérstaklega í seinni leiknum. Við unnum mikið af boltum sem gáfu okkur hraðaupphlaupsmörk."

,,Mér finnst við eiga enn þá eitthvað í land sóknarlega. Við þurfum að fínpússa það aðeins betur, hvað varðar tímasetningar og fleira. En í heildina var meira gott en annað og það sem var ekki nógu gott er eitthvað sem við þurfum að nýta tímann fram að móti til að bæta.“

Ágúst segir að liðið sé enn í mótun, meðal annars vegna breytinga á leikmannahópnum en Garðar Ingi Sindrason dró sig úr leikmannahópnum á dögunum en auk hans eru Dagur Árni Heimisson og Baldur Fritz Bjarnason að glíma við meiðsli og verða ekki með á EM.

„Við erum að reyna að stilla liðið saman. Það eru leikmenn sem hafa verið í þessu liði áður sem verða ekki með vegna meiðsla. Það eru því nýir leikmenn að koma inn og fá stærra hlutverk, sem er jákvætt. Þeir leikmenn eiga eftir að vaxa í sínum hlutverkum."

,,Hópurinn lítur vel út og það er góð orka í strákunum. Menn eru vinnusamir og duglegir. Nú er vika í að við förum út og við þurfum að nýta tímann vel fram að því.“

Framundan er krefjandi verkefni á Evrópumótinu þar sem Ísland mætir sterkum andstæðingum í riðlakeppninni.

„Strákarnir eru spenntir að takast á við komandi verkefni. Við erum í krefjandi riðli með Spánverjum sem enduðu í öðru sæti á síðasta stórmóti og síðan Austurríki sem er í raun besta liðið í þriðja styrkleikaflokki. Þá erum við einnig með Lettum í riðlinum. Við þurfum að vera vel undirbúnir og tilbúnir í slaginn þegar EM hefst.“

Ísland hefur leik á á EM á miðvikudaginn í næstu viku er liðið mætir Austurríki í 1.umferð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top