Hallgrímur Jónasson hefur verið ráðinn markmannsþjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu sem leikur í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.. Þetta tilkynnti félagið á dögunum á samfélagsmiðlum sínum. Hallgrímur Jónasson er faðir landsliðsmarkvarðarins, Viktors Gísla Hallgrímssonar sem á dögunum varð Evrópumeistari með Magdeburg eftir sigur á Füchse Berlin í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þá mun Hallgrímur einnig þjálfa markverði yngri flokka félagsins, segir í tilkynningunni. ,,Hallgrímur er einn reyndasti markmannsþjálfari landsins auk þess að hafa þjálfað yngri flokka um árabil. Hann átti sömuleiðis farsælan feril sem markmaður. Það eru virkilega ánægjuleg tíðindi að Hallgrímur verði hjá Gróttu enda öflugur markmannsþjálfari sem markmenn meistaraflokks karla og yngri flokka munu njóta góðs af," segir ennfremur í tilkynningunni frá Gróttu. Hallgrímur kemur því inn í þjálfarateymi Gróttu en Andri Sigfússon tók við liðinu á dögunum af Davíð Erni Hlöðverssyni en Aron Örn Heimisson verður aðstoðarþjálfari liðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.