Handknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við markmanninn Garp Druzin Gylfason til næstu tveggja ára en hann kemur frá Fram. Garpur Druzin er fæddur 2005 og er því 21 árs. Hann er uppalinn hjá Þrótti í Laugardalnum en færði sig svo til Fram og hefur verið þar í mörg ár og leikið með yngri flokkum og U-liði félagsins að mestu. "Við erum afar ánægð með að fá Garp til liðs við okkur. Hann er öflugur markvörður sem bætir miklum gæðum inn í hópinn og hefur jafnframt þann karakter sem við viljum hafa í liðinu. Við hlökkum til samstarfsins og bjóðum hann hjartanlega velkominn í Fjölni" segir Sveinn Þorgeirsson fulltrúi meistaraflokksráðs karla hjá Fjölni.
"Ég er mjög spenntur fyrir komandi tímabili og hlakka mikið til að takast á við nýjar áskoranir með nýju liði. Ég mun leggja mig 100% fram og gera allt sem ég get til að hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum" segir Garpur Druzin Gylfason jafnframt.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.