Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir fór á kostum í vinstra horni íslenska U20 ára landsliðsins er liðið vann þriggja marka sigur á Brasilíu í lokaleik sínum á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Kína. Ísland vann Brasilíu 30-27 en Ásthildur Jóna gerði sér lítið fyrir og skoraði tíu mörk úr ellefu skottilraunum og var markahæsti leikmaður íslenska liðsins í leiknum. Íslensku stelpurnar voru með forystu nær allan leikinn og leiddu í hálfleik með einu marki 15-14. Þær hófu seinni hálfleikinn af krafti og voru fljótlega komnar með fjögurra marka forskot í stöðunni 19-15. Mest náðu þær fimm marka forskoti en þær brasilísku gáfust ekki upp og jöfnuðu metin í stöðunni 23-23. Íslensku stelpurnar reyndust hinsvegar sterkari aðilinn á lokakaflanum og unnu að lokum þriggja marka sigur 30-27 og tryggðu sér þar með 19.sætið á mótinu. Markaskorar Íslands: Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 10, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 6, Guðrún Hekla Traustadóttir 5, Arna Karítas Eiríksdóttir 5, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 1, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 1, Ásdís Halla Hjarðar 1, Hulda Hrönn Bragadóttir 1.


Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.