Að loknu heimsmeistaramóti U20 ára kvenna í Kína, þar sem Þýskaland tryggði sér heimsmeistaratitilinn með 33-26 sigri á Danmörku í úrslitaleiknum hefur Alþjóðahandknattleikssambandið (IHF) tilkynnt úrvalslið mótsins. Fjórar þjóðir eiga fulltrúa í úrvalsliðinu, en það eru Danmörk, Þýskaland, Spánn og Frakkland, sem öll komust í undanúrslit keppninnar og léku um verðlaun á mótinu. Ruslana Litvinov var valin besti leikmaður mótsins (MVP). Hún átti frábært mót, skoraði 22 mörk, gaf 28 stoðsendingar og stal boltanum 14 sinnum. Heimsmeistarar Þýskalands eiga einnig einn leikmann í úrvalsliðinu, vinstri hornamanninn Chiara Rohr. Danmörk á þrjá fulltrúa í liðinu. Freja Fonseca Nielsen var valin besti markvörður mótsins, Julie Groth Persson besta hægri skyttan og Kirstine Emilie Hoppe besti miðjumaðurinn. Hoppe varð jafnframt markahæsti leikmaður mótsins með 66 mörk. Spánn á tvo fulltrúa í úrvalsliðinu. Belen Rodriguez Lario, sem var valin besti leikmaður HM U18 ára árið 2024, var valin besta vinstri skyttan á mótinu. Þá var línumaðurinn Kelly Fonkeng Mfotiog valinn besti línumaðurinn. Frakkland á einn fulltrúa í úrvalsliðinu en Dawiya Abdou var valin besti hægri hornamaður mótsins. Úrvalslið HM U20 ára kvenna: Besti leikmaður mótsins (MVP): Ruslana Litvinov (Þýskaland) Markahæsti leikmaður mótsins: Kirstine Emilie Hoppe (Danmörk) – 66 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.