Vinstri hornamaðurinn, Róbert Dagur Davíðsson hefur gengið í raðir Gróttu í Grill66-deildinni. Róbert hefur gert tveggja ára samning við liðið. Róbert Dagur er tvítugur og er uppalinn í FH og lék með öllum yngri flokkum félagsins. Hann lék með Fjölni í Olísdeildinni tímabilið 2024-2025 og síðan með ÍH í Grill 66-deildinni á síðastliðnu tímabili þar sem hann skoraði 56 mörk. „Við fögnum því að fá Róbert Dag í okkar raðir. Hann er góður sóknarlega og getur leyst nokkrar stöður fyrir okkur varnarlega. Hann mun mynda frábært hornateymi vinstra megin með Kára Kvaran. Ég hlakka mikið til að vinna með honum næstu árin“, sagði Andri Sigfússon þjálfari liðsins þegar samningur var kominn í hús. Róbert er fimmti leikmaðurinn sem gengur í raðir Gróttu í sumar en liðið var hársbreidd frá því að vinna Grill66-deildina á síðustu leiktíð en liðið endaði með jafn mörg stig og Víkingur sem vann deildina. Þjálfarabreytingar hafa orðið á liði Gróttu en Andri Sigfússon tók við liðinu af Davíð Erni Hlöðverssyni. Miklar væntingar eru gerðar til liðsins fyrir næstu leiktíð í Grill66-deildinni. Grótta: Farnir:
Komnir:
Matthías Ingi Magnússon frá Val
Egill Oddgeir Stefánsson frá ÍBV
Ásgeir Bragi Bryde Þórðarson frá Haukum
Arnþór Sævarsson frá Fram
Róbert Dagur Davíðsson frá ÍH
Atli Steinn Arnarsson í ÍBV
Gunnar Hrafn Pálsson í Víking
Tómas Bragi Starrason í HK
Antoine Pantano í FH
Þorgeir Bjarki Davíðsson í Víking
Bessi Teitsson í Val

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.