Strákarnir í 20 ára landsliði Íslands lögðu í gærkvöldi af stað til Rúmeníu þar sem þeir taka þátt í lokakeppni Evórópumótsins sem fer fram dagana 8. – 19. júlí í borginni Cluj-Nepoca. Ísland leikur í C-riðli ásamt Spánverjum, Lettlandi og Austurríki en fyrsti leikur liðsins verður gegn Austurríki á miðvikudaginn klukkan 14:00 á íslenskum tíma en klukkan 9:00 sama dag mætast Spánn og Lettland í fyrsta leik riðilsins. Þjálfarar liðsins eru þeir Ágúst Jóhannsson og Maksim Akbachev og markmannsþjálfari liðsins er Jóhann Ingi Guðmundsson. Hópurinn er eftirfarandi: Markmenn: Alexander Ásgrímsson , ÍR Jens Sigurðarson, Valur Aðrir leikmenn: Andri Erlingsson, IFK Kristianstad Ágúst Guðmundsson, FH Bessi Teitsson, Valur Birgir Leó Stefánsson, Haslum Dagur Leó Fannarsson, Valur Daníel Montoro, Valur Elís Þór Aðalsteinsson, ÍBV Antoine Óskar Pantano, FH Harri Halldórsson, Afturelding Ingvar Dagur Gunnarsson, FH Jens Bragi Bergþórsson, KA Jökull Blöndal Björnsson, ÍR Magnús Jónatansson, KA Stefán Magni Hjartarson, Afturelding

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.