Símon framlengir í Krikanum
J.L.Long

Vinstri hornamaður FH síðustu leiktíðir í Olís-deild karla, Símon Michael Guðjónsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Hann leikur því með félaginu áfram næstu tvö árin í það minnsta.

Símon Michael sem er fæddur árið 2002 er uppalinn hjá HK gekk til liðs við FH sumarið 2023 og hefur verið í Fimleikafélaginu síðustu þrjú tímabil.

Hann skoraði 155 mörk í öllum keppnum fyrir FH á síðustu leiktíð en FH tapaði í oddaleik úrslitaeinvígsins gegn Val á síðustu leiktíð. Liðið endaði í 2.sæti Olís-deildarinnar og tapaði í undanúrslitum Powerade-bikarsins.

Símon varð Íslandsmeistari með FH vorið 2024 auk þess að verða deildarmeistari með FH árið 2024 og 2025.

,,Það er fagnaðarefni fyrir félagið að Símon hafi ákveðið að framlengja dvöl sína í Krikanum," segir í tilkynningunni frá FH.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top