Vinstri hornamaðurinn Bjarki Már Elísson leikur með franska stórliðinu PSG á komandi tímabili eftir að hafa skrifað undir eins árs samning við félagið. Þar með heldur hann áfram að leika í Meistaradeild Evrópu eftir fjögur tímabil með Veszprém í Ungverjalandi. Bjarki Már kemur til PSG í kjölfar þess að franski landsliðsmaðurinn Mathieu Grébille sleit hásin í lok maí og verður frá keppni næstu mánuði. Í samtali við Handkastið segir Bjarki að fyrstu samskiptin við félagið hafi hafist fljótlega eftir meiðslin. „Mathieu Grébille meiðist í lok maí og í kjölfarið heyra þeir í mér og sýna mér strax áhuga. Í kjölfarið átti mögulega að fara fram einhver þjálfarakapall svo þetta dróst á langinn sem síðan varð ekkert úr. Það gerðist því lítið í einhverntíma en leið og ég fékk tilboð í hendurnar frá þeim þá gekk þetta smurt fyrir sig.“ Bjarki segir að hann sé spenntur fyrir nýja kaflanum en að hlutverk hans innan liðsins muni ráðast af frammistöðu hans en fyrir er Daninn, Emil Mellegård sem gekk í raðir PSG fyrir síðasta tímabil. „Ég veit svosem ekkert endilega hvernig hlutverk mitt verður hjá liðinu á næstu leiktíð en ég geri ráð fyrir og vonast eftir að fá ágætis hlutverk og að ég fái að spila mikið. Það verður undir mér komið að spila nægilega vel svo ég fái að spila eitthvað.” Bjarki segist spenntur fyrir því að leika með PSG. „Mér líst fáránlega vel á þetta, þetta er lið í Meistaradeildinni og er að vinna titla heima fyrir og þetta er risa félag. Þetta er líka mikilvægt varðandi landsliðið að ég sé að spila á eins háu leveli og hægt er.“ Undanfarnar vikur voru þó ekki átakalausar fyrir landsliðsmanninn, sem beið eftir því að finna sér nýjan atvinnurekanda á sama tíma og fjölskyldan flutti frá Ungverjalandi. „Síðustu vikur hafa verið erfiðar, bæði óvissan um framhaldið og að við vorum að flytja frá Ungverjalandi svo þetta er búið að vera mikill rússibani en þetta leistist allt á endanum.“ Þrátt fyrir að samningurinn hafi komið seint segist Bjarki hafa haft fulla trú á því að hann gæti verið inni í myndinni þegar félög á hæsta stigi væru að leita að vinstri hornamanni. „Þegar svona félag er að leita af leikmönnum í minni stöðu þá geri ég alltaf ráð fyrir því að vera í umræðunni, ég hef spilað það vel í vetur og hef það mikla trú á sjálfum mér. En vissulega kom þessi lending seint og ég var ekkert að búast við því að einhver myndi meiðast og ég ég fengi séns. Eins manns dauði er annars manns brauð.“ Bjarki, sem varð 36 ára í maí, fær því tækifæri til að bæta enn einu stórliðinu á ferilskrána og verður hluti af PSG-liði sem stefnir jafnt að franska meistaratitlinum sem og árangri í Meistaradeild Evrópu á komandi keppnistímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.