Fyrirliði ÍR-inga, Sveinn Brynjar Agnarsson hefur framlengt samningi sínum við félagið. Þetta tilkynnti ÍR á samfélagsmiðlum fyrr í dag. Sveinn Brynjar gerir samning til ársins 2029 og þar með er ljóst að hann leikur með liðinu í Grill66-deildinni á næstu leiktíð en ÍR féll úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð eftir tveggja ára veru í deild þeirra bestu. Sveinn Brynjar lék alla leiki ÍR á síðustu leiktíð og skoraði 55 mörk. ,,Svenni er ÍR-ingur í gegn enda uppalinn leikmaður sem gefur mikið af sér til félagsins innan sem utan vallar. Við ÍR-ingar erum glaðir með undirskrift Svenna enda er framlenging hans mikilvægur liður í áframhaldandi uppbygginu meistaraflokks karla," segir í tilkynningunni frá ÍR. Sveinn Brynjar hefur allan sinn feril leikið með ÍR að undanskildu einu ári er hann lék með Gróttu í Olís-deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.