Árni Bragi og Birkir í viðræðum við Aftureldingu
Egill Bjarni Friðjónsson

Samningur Árna Braga Eyjólfssonar við Aftureldingu rann út í sumar en samkvæmt heimildum Handkastsins eru viðræður í gangi og vonast félagið til að ná samkomulagi við leikmanninn um að hann leiki áfram með félaginu.

Árni hefur verið einn af lykilmönnum Mosfellinga undanfarin ár og yrði mikilvægur hlekkur í uppbyggingu liðsins fyrir komandi tímabil.

Þá herma heimildir Handkastsins að Birkir Benediktsson sé kominn langt í samningaviðræður við uppeldisfélag sitt. Birkir, sem er uppalinn hjá Aftureldingu lék síðustu tvö tímabil með Wakunaga í Japan en sneri aftur til Íslands á síðasta tímabili og lék með FH í Olís-deildinni.

Ef af félagaskiptunum verður myndi Birkir snúa aftur í herbúðir Aftureldingar eftir tveggja ára viðskilnað við félagið og styrkja liðið sem stefnir hátt á komandi leiktíð með nýja þjálfara í brúnni.

Hrannar Guðmundsson og Ingimundur Ingimundarson voru ráðnir þjálfarar liðsins á dögunum. Ljóst er að félagið vinnur nú að því að móta leikmannahópinn fyrir næsta tímabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top