Leikstjórnandinn, reyndi Björgvin Páll Rúnarsson hefur ákveðið að yfirgefa uppeldisfélag sitt Fjölni en hann gekk á dögunum til liðs við færeyska félagið KÍF. Viktor Lekve er þjálfari KÍF en Viktor var aðstoðarþjálfari Fjölnis á sínum tíma. Björgvin segir að áhugi KÍF hafi komið sér nokkuð á óvart en ákvörðunin hafi verið fljóttekin þegar viðræður hófust. „Viktor Lekve hafði samband við mig og eftir smá spjall fann ég fljótlega að þetta væri spennandi tækifæri og ég ákvað að kýla á þetta,“ sagði Björgvin í samtali við Handkastið. Hann segir að stærsti drifkrafturinn á bak við ákvörðunina hafi verið að takast á við nýjar áskoranir. „Ég myndi segja að það sem heillar mig mest við þetta er að stíga aðeins út fyrir þægindarammann og spila handbolta í nýju og öðruvísi umhverfi. Það kom mér frekar á óvart þegar Viktor heyrði í mér en ég er mjög spenntur fyrir þessu tækifæri.“ Hann hefur þegar kynnt sér færeysku deildina. ,,Ég er búinn að kynna mér deildina aðeins. Línumaðurinn sem var hjá KÍF í fyrra (Tóki) var til dæmis að skrifa undir hjá Stjörnunni og menn koma reglulega þaðan í Olísdeildina, svo mér skilst að það sé mikill áhugi á deildinni úti.“ „Ég átti persónulega gott tímabil þegar Fjölnir var síðast í Olís og markmiðið er að byggja ofan á það og svo að hjálpa liðinu eins og ég get með okkar sameiginlegu markmið.“ Hann þekkir jafnframt vel til Viktors Lekve, þjálfara KÍF, eftir að hafa unnið með honum hjá Fjölni. Hann gerir ráð fyrir því að vera í stóru hlutverki hjá liðinu á næsta tímabili. ,,Ég sé fram á að geta hjálpað liðinu á báðum endum vallarins og einnig utan vallar.“ Björgvin heldur út til Færeyja í lok mánaðarins þar sem undirbúningur fyrir komandi keppnistímabil hefst með nýju liðsfélögunum hjá KÍF.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.