Daninn Oliver Christensen er einn af nýjum leikmönnum Þórs Akureyrar fyrir komandi tímabil. Christensen er tvítugur vinstri hornamaður sem er uppalinn hjá Skanderborg og kemur til Íslands fullur tilhlökkunar og nýrri áskorun á ferlinum. Áður en hann ákvað að semja við Þór leitaði Oliver ráða hjá þjálfurum sínum um íslenska handboltann. „Ég ræddi við þjálfarana mína og þeir sögðu mér að deildin væri hörð, líkamlega krefjandi og mjög góður vettvangur fyrir unga leikmenn til að þróast.“ Hann segist einnig hafa kynnt sér deildina og vissi að margir leikmenn hafa notað hana sem mikilvægt skref á ferlinum. Christensen kom til Íslands í gær og segist hlakka til að hitta nýja liðsfélaga sína og hefja undirbúninginn fyrir tímabilið. Markmið hans fyrir komandi leiktíð eru skýr, bæði fyrir liðið og hann sjálfan. „Ég vil hjálpa liðinu að komast í úrslitakeppnina og ná einhverju sérstöku með Þór. Jafnframt vil ég bæta mig á hverjum degi og eiga gott tímabil, bæði sem einstaklingur og sem hluti af liðinu. Persónulega vil ég einnig verða betri varnarmaður, meðal annars með því að vinna fleiri bolta og auðvitað langar mig að skora fullt af mörkum fyrir Þór.“ Aðspurður hvernig leikmaður hann sé lýsir Christensen sér sem vinnusömum hornamanni sem vilji leggja sitt af mörkum báðum megin vallarins. „Ég er vinnusamur leikmaður sem vill leggja mitt af mörkum bæði í vörn og sókn. Ég er fljótur vinstri hornamaður með góða yfirsýn og finnst gaman að skora úr erfiðum skotfærum. Ég er einnig sterk vítaskytta og hef verið fyrsti valkostur liðsins í vítaköstum og vonandi heldur það áfram á Akureyri.“ Oliver Christensen hefur heyrt margt jákvætt um landið frá vinum og vandamönnum en hann hafði aldrei komið til Íslands fyrr en í gær. „Ég hef heyrt frá mörgum fjölskylduvinum að Ísland sé fallegt land með magnaða náttúru og frábæra handboltamenningu. Ég hlakka mikið til að kynnast menningunni og hitta nýtt fólk.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.