Óvissa ríkir um frekari þátttöku hægri hornamannsins Daníels Montoro með íslenska U20 ára karlalandsliðinu á Evrópumótinu í handbolta sem nú stendur yfir í Rúmeníu. Daníel varð fyrir meiðslum í upphafi síðari hálfleiks í leik Íslands gegn Spáni í annarri umferð riðlakeppninnar og gat ekki haldið leik áfram. Hann kom síðan ekkert við sögu þegar Ísland tryggði sér sæti í milliriðli með sigri á Lettlandi í gær. ÍSLAND MÆTIR KRÓATÍU Í LYKILLEIK Í MILLIRIÐLI EVRÓPUMÓTSINS Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska liðsins, staðfesti í samtali við Handkastið að Daníel hafi tognað í læri í leiknum gegn Spáni. Enn er óljóst hvort hann verði leikfær í þeim mikilvægu leikjum sem fram undan eru í milliriðlinum. Daníel hafði jafnframt verið að glíma við meiðsli í aðdraganda Evrópumótsins og því hafa meiðslin reynst honum erfið á þessum fyrstu dögum keppninnar. Fjarvera hans hefur þýtt að Stefán Magni Hjartarson hefur leikið nánast allan tímann í hægra horninu. Íslenska liðið mætir Króatíu á morgun, mánudag, klukkan 14:00 að íslenskum tíma í fyrsta leik sínum í milliriðli. Á þriðjudaginn tekur liðið svo á móti Danmörku, einnig klukkan 14:00. Báðir leikirnir eru afar mikilvægir í baráttunni um sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.