Data Handball tók saman á instagram reikningi sínum í vikunni sigurvegara í hverju landi fyrir sig á síðasta tímabili og fjölda landstitla hjá þeim liðum. Á toppi listans tróna Króatísku meistararnir í Zagreb með 34 landstitla en í öðru sæti eru Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Barcelona. Valsmenn sem unnu FH í oddaleik í vor og eru því fulltrúar okkar á listanum eru með 25 Íslandsmeistaratitla og sitja í fjórða sæti yfir ríkjandi landsmeistara en í 3.sætinu eru ungversku meistararnir í Veszprém með 30 titla. Listann má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.