Stefán Árnason er kominn með nýtt þjálfarastarf. Hann hefur verið ráðinn til Handboltasambandsins í Kuwait. Stefán flaug út í Persaflóann þann 7. júlí og hóf strax störf fyrir Kúveitska handboltasambandið. Aron Kristjánsson er eins og kunnugt er A-landsliðsþjálfari Kuwait og hefur verið það síðan í mars 2025. Starf Stefáns hjá Handboltasambandinu í Kúveit mun vera fjölbreytt og verður hann aðalþjálfari 16 ára landsliðsins hjá drengjum sem fæddir eru 2010, auk þess að vinna með öllum landsliðum Kúveit upp í A-landsliðið. Mun hann koma að tækniþjálfun og þróun leikmanna hjá sambandinu þar sem hann vinnur náið með Aroni Kristjánssyni landsliðsþjálfara og öðrum þjálfurum hjá Kúveit.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.