Íslenska U20 ára landsliðið lék sinn fyrsta leik í milliriðli EM í Rúmeníu nú fyrr í dag. Andstæðingarnir voru Króatar. Okkar strákar hófu leikinn mun betur og komust í 4-1 eftir nokkurra mínútna leik. Króatar náðu að jafna leikinn jafnharðan og komast yfir 7-9. Í kjölfarið af því náðu okkar strákar forystu og héldu henni út hálfleikinn. Þegar liðin gengu til búningsklefa var staðan 13-12, Íslandi í vil. Harri Halldórsson dró vagninn sóknarlega og var með 5 mörk. Síðari hálfleikur var jafn og skemmtilegur. Okkar strákar náðu mest fjögurra marka forskoti 21-17 en þá fór allt í baklás og Króatar komust yfir 23-24 og aftur 24-25 þegar hálf mínúta var eftir af leiknum. Ágúst Jóhannsson þjálfari íslenska liðsins tók þá leikhlé og skipulagði lokasókn Íslands. Ísland fór í 7 á 6 og Stefán Magni Hjartarson skoraði og jafnaði leikinn. Enn var tími fyrir Króata sem tóku leikhlé og skoruðu sigurmarkið í þann mund sem lokaflautið gall. Lokastaða 25-26. Markaskor Íslands: Í markinu stóð Alexander Ásgrímsson allan leikinn og varði 12 skot og var með 32% hlutfallsmarkvörslu. Næsti leikur Íslands er strax á morgun þegar liðið mætir sterku liði Danmerkur. Danir unnu Króata í riðlakeppninni með sjö mörkum og því má búast við erfiðum leik. Íslenska liðið þarf sigur til að eiga möguleika á 8 liða úrslitum mótsins. Leikurinn hefst kl. 14:00 á morgun, þriðjudag.
Andri Erlingsson – 5 mörk
Harri Halldórsson – 5 mörk
Ágúst Guðmundsson – 4 mörk
Elís Þór Aðalsteinsson – 4 mörk
Antoine Óskar Pantano – 2 mörk
Bessi Teitsson – 2 mörk
Jens Bragi Bergþórsson – 2 mörk
Stefán Magni Hjartarson – 1 mark

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.