U18 ára drengja landslið Íslands leikur tvo vináttulandsleiki gegn Færeyjum um næstu helgi í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Leikirnir eru liður liðsins í undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið sem hefst síðar í júlí. Leikirnir við Færeyja fara fram klukkan 16:00 á laugardag og sunnudag. Á Evrópumótinu leikur Ísland í riðli með Ungverjalandi, Sviss og Svartfjallalandi og gefa leikirnir gegn Færeyjum þjálfarateyminu gott tækifæri til að fínstilla leik liðsins áður en keppnin hefst. Þjálfarateymi liðsins er ekki af verri endanum með þá Andra Sigfússon, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Snorra Stein Guðjónsson. Það er erfitt að ímynda sér annað eins þjálfarateymi. Í landsliðinu eru nokkrir leikmenn sem hafa gert sig gildandi í Olís-deild karla, má þar meðal annars nefna leikmenn á borð við Anton Frans Sigurðsson, Frey Aronsson, Gunnar Róbertsson, Ómar Darra Sigurgeirsson og Patrek Smára Arnarsson. Leikmannahópur Íslands er þannig skipaður:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.