Strákarnir í U20 ára landsliðinu mættu Dönum í seinni leik liðsins í milliðrili á EM í Rúmeníu sem fram fer þessa dagana. Sigur í leiknum myndi gefa okkar strákum möguleika á sæti í 8 liða úrslitum mótsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og var jafnt á öllum tölum. Undir lok fyrri hálfleiks misnotuðu okkar strákar nokkrar sóknir og Danir gengu á lagið. Þeir höfðu þriggja marka forskot í hálfleik, 17-14. Það voru Danir sem voru sterkari aðilinn í síðari hálfleik og uppskáru að lokum 31-29 sigur þrátt fyrir álitlega endurkomu okkar stráka undir lok leiksins. Markaskor Íslands: Í markinu varði Jens Sigurðarson 8 skot og var með 24% hlutfallsmarkvörslu. Alexander varði 4 skot og var með 44% hlutfallsmarkvörslu. Með þessum úrslitum leikur liðið um sæti 9-16 á mótinu. Næsti leikur liðsins er á fimmtudaginn og ekki er komið á hreint gegn hverjum.
Ágúst Guðmundsson 9 mörk
Jens Bragi Bergþórsson – 7 mörk
Andri Erlingsson – 5 mörk
Bessi Teitsson – 3 mörk
Jökull Blöndal Björnsson – 2 mörk
Stefán Magni Hjartarson – 2 mörk
Ingvar Dagur Gunnarsson – 1 mark

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.