HK hefur samið við danska leikmanninn Andrew Wisman til næstu tveggja ára. Wisman er fæddur árið 2004 og kemur upp úr öflugri akademíu Nordsjælland, þar sem hann lék með meistaraflokki síðustu tvö tímabil. Í janúar var hann lánaður til sænska félagsins Ystad, þar sem hann leikur um þessar mundir. Þá hefur Wisman einnig verið hluti af yngri landsliðum Danmerkur og var í 20 manna hópi U20 landsliðsins sem varð heimsmeistari og vann silfurverðlaun á Evrópumótinu. Nýjasti leikmaður HK segir ákvörðunina um að flytja til Íslands hafa verið auðvelda þegar ljóst varð hversu mikinn áhuga félagið hafði á að fá hann til liðs við sig. Hann telur Kópavogsliðið vera kjörinn vettvang til að halda áfram að þróast sem leikmaður og um leið hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum. „Að ganga til liðs við HK fannst mér vera rétta tækifærið. Félagið sýndi mér mikinn áhuga og ég tel að þetta sé fullkominn staður fyrir mig til að halda áfram að bæta mig sem leikmaður á sama tíma og ég hjálpa liðinu að ná sínum markmiðum.“ Áður en hann tók endanlega ákvörðun ræddi hann við þjálfara HK, sem hann þekkti fyrir. „Já, ég þekkti þjálfarann fyrir og ræddi við hann áður en ég ákvað mig. Hann sagði mér mikið um deildina, félagið og hverju ég mætti búast við. Það gaf mér mikla trú á því að HK væri rétti staðurinn fyrir mig.“ Þótt hann hafi ekki fylgst mikið með Olísdeildinni segir hann hafa heyrt margt jákvætt um hana og handviss um að hún sé frábær stökkpallur fyrir hann á ferlinum sínum. Andrew hefur aldrei áður komið til Íslands en hlakkar til að kynnast landinu og upplifa náttúruna sem hann hefur heyrt mikið um. Aðspurður um leikstíl sinn segir hann vinstri skyttustöðuna vera sína aðalstöðu, þótt hann geti einnig leyst af sem leikstjórnandi. „Aðalstaðan mín er vinstra megin í skyttustöðunni en mér finnst líka gaman að sækja inn á miðjuna. Ég myndi lýsa mér sem líkamlega sterkum leikmanni sem nýtir styrk sinn til að skapa færi bæði fyrir sjálfan mig og liðsfélagana.“ Hann kom til Íslands 15. júlí og hann segir markmið hans fyrir fyrsta tímabilið með HK vera skýr. „Ég vil hjálpa HK að eiga farsælt tímabil með því að leggja mig fram af fullum krafti í hverjum leik og á hverri æfingu. Jafnframt vil ég halda áfram að bæta mig sem leikmaður.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.