Blint stefnumót við framtíðina

Akureyringurinn Stefán Rúnar Árnason var á dögunum ráðinn í nýtt starf eins og kom fyrst fram hér á Handkastinu.

Stefán var ráðinn til Handboltasambandsins í Kúveit og mun þar vera landsliðsþjálfari 16 ára landsliðs karla ásamt því að koma að tækniþjálfun og þróun leikmanna hjá Handboltasambandinu þar í landi. Mun hann vinna náið með Aroni Kristjánssyni þjálfara A-landsliðsins í Kúveit að byggja upp handboltann í landinu.

Stefán hefur áður þjálfað hjá KA, Selfossi, ÍBV og Aftureldingu og því er óhætt að segja að það sé núna mikil kúvending á hans þjálfaraferli að vera kominn til Kúveit.

Við heyrðum aðeins í Stefáni og spurðum hann nokkurra spurninga.

Hvernig kemur það til að þú ert að fara að þjálfa í Kúveit? Átti þetta sér langan aðdraganda?

Aðdragandinn var í raun frekar stuttur. Aron Kristjáns hafði samband við mig strax í apríl og vildi fá mig til að hjálpa til við að koma handboltanum í Kúveit á næsta stig. Það hljómaði strax eins og eitthvað sem ég vildi gera og er góður í svo ég var til. Það eina sem tók smá tíma var að safna nokkrum skjölum saman til að senda út og leyfi til að starfa í landinu. Annars hefur þetta legið fyrir í þónokkurn tíma.

Voru aðrir möguleikar í stöðunni? Heyrðirðu frá öðrum aðilum?

Já ég fékk þónokkur símtöl og ég kunni mjög mikið að meta áhugann sem mér var sýndur en ég hinsvegar ýtti því öllu frá mér þegar þetta með Kúveit kom upp.

Hvert verður þitt hlutverk hjá Kúveit og hvernig sérðu verkefnið fyrir þér?

Ég er landsliðsþjálfari hjá hópnum sem er fæddur 2010. Eins mun ég vinna þvert á öll landsliðin hjá Kuwait upp í A-landsliðið og koma að því að þróa leikmennina svo eitthvað sé nefnt.

Þetta er spennandi verkefni sem ég er að koma inn í. Hér eru aðstæðurnar frumstæðar og ég á eftir að kynnast betur á næstu vikum hvað sé nákvæmlega í vændum. Það má í raun segja að þetta sé blint stefnumót við framtíðina. Aðalatriðið er að ég fæ að gera það sem ég kann og láta gott af mér leiða. Ég held ég geti gert alla leikmenn betri og kennt þeim handbolta, hvort sem þeir eru frá Evrópu eða Arabaskaganum, og það er markmiðið hér. Hérna er jákvætt og viljugt fólk svo það er ýmislegt mögulegt að gera.

Þú starfaðir í fjögur ár hjá Aftureldingu - hvernig fannst þér tíminn þar og hvað stendur uppúr?

Ég átti fjögur frábær ár í Mosfellsbæ og er hvað stoltastur af því að skilja við Aftureldingu á töluvert betri stað en það var á þegar ég kom í félagið. Ég elskaði tímann þar og umhverfið. Þegar ég horfi yfir rúmlega 20 ára þjálfaraferil þá eru þetta trúlega mín bestu ár í þjálfun og náðum við að afreka ýmsu á þessum tíma.

Uppúr standa fjölmargir stórkostlegir leikmenn sem ég fékk að þjálfa en margir af þeim eru með þeim eftirminnilegri sem maður hefur þjálfað. Ég er afar stoltur af því hvað við gerðum með unga leikmenn í Mosfellsbæ seinustu ár og geta sagt að drengirnir okkar eru orðnir að mönnum. Svo var samstarfið með Daníel Berg og Gunna Magg náttúrulega frábært og forréttindi að vinna með slíkum fagmönnum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top