Handkastið greindi frá því í gær að ekkert verði úr því að markvörðurinn Sigurjón Guðmundsson haldi heim til Íslands á næstu leiktíð, þrátt fyrir mikinn áhuga frá félögum í Olís-deild karla. Handkastið greindi áður frá því að bæði Valur og Fram hefðu verið í sambandi við Sigurjón, auk þess sem talið var líklegt að fleiri íslensk félög hefðu kannað möguleikann á að fá markvörðinn í sínar raðir. Nú herma hins vegar heimildir Handkastsins að Sigurjón hafi ákveðið að vera áfram í Noregi og sé á leið til Sandefjord. Sandefjord voru nýliðar í norsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og hafnaði í 6. sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Sandefjord tapaði síðan gegn Bergen 2-0 í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar. Sigurjón, sem er uppalinn hjá HK og sonur Guðmundar Hrafnkelssonar, hefur slegið í gegn með norska stórliðinu Kolstad. Þegar Andreas Palicka yfirgaf félagið í janúar vegna fjárhagsvandræða fékk Sigurjón stærra hlutverk og nýtti það afar vel. Hann átti stóran þátt í því þegar Kolstad tryggði sér norska meistaratitilinn eftir úrslitaeinvígi gegn Drammen, þar sem Ísak Steinsson leikur. Hjá Sandefjord er Sigurjóni ætlað að fylla skarð þýska markvarðarins Phil Döhler, sem lék áður með FH en yfirgaf félagið í sumar. Phil Döhler gekk í raðir sænska félagsins, Amo í sumar og verður þar liðsfélagi Arnars Birkis Hálfdánssonar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.