Íslenska landsliðsparið Orri Freyr Þorkelsson og Alexandra Líf Arnarsdóttir eru trúlofuð. Orri Freyr fór á skeljarnar í sumarfríi parsins í Mónakó og bað Alexöndru Lífar. Hún tók bónorðinu að sjálfsögðu vel og greindi frá gleðitíðindunum á Instagram þar sem hún skrifaði á léttan hátt: „Ekki flókið já.“ Orri Freyr leikur með portúgalska stórliðinu Sporting CP og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af lykilmönnum íslenska karlalandsliðsins. Alexandra Líf hefur á sama tíma verið öflug með Haukum hér á landi og einnig verið hluti af íslenska kvennalandsliðinu. Bæði eru þau uppalin hjá Haukum þar sem Alexandra Líf spilar í dag. Bæði áttu þau annasamt landsliðsár. Orri Freyr var einn af lykilmönnum íslenska landsliðsins sem komst alla leið í undanúrslit Evrópumótsins, á meðan Alexandra Líf var í leikmannahópi Íslands á heimsmeistaramóti kvenna sem fram fór í Þýskalandi. Handkastið óskar Orra Frey og Alexöndru Líf innilega til hamingju með trúlofunina og óskar þeim alls hins besta á komandi árum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.