Arnór Þorri leggur skóna á hilluna
Egill Bjarni Friðjónsson)

Þórsarinn Arnór Þorri Þorsteinsson er búinn að leggja skóna á hilluna. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið.

Arnór Þorri er fæddur 1994 og alinn upp í Þorpinu hjá Þór. Fyrstu meistaraflokks árin var hann í Akureyri Handboltafélagi en sumarið 2015 fór hann í Víking.

Nokkrum árum seinna sneri hann aftur í Þór og hefur spilað með þeim allar götur síðan. Tímabilið 2022/2023 var hann m.a markakóngur Grill 66 deildar karla.

Arnór Þorri skoraði 34 mörk í 22 leikjum á síðasta tímabili en Þórsarar lentu í 9. sæti í Olís deildinni.

Hann tjáði sig um ákvörðunina að leggja skóna á hilluna.

"Já það er rétt að ég hef ákveðið að leggja skóna á hilluna. Mér finnst þetta vera góður tímapunktur til að setja punktinn aftan við þetta. Það hefur tekið Þór nokkur ár að koma sér aftur upp í Olís deildina og svo tókst liðinu að tryggja sætið sitt áfram á síðasta tímabili. Það hefur verið virkilega gaman að fá að taka þátt í þessu ferðalagi og upplifa þetta með frábærum hópi. Það verður öðruvísi en líka spennandi að fylgjast með liðinu úr stúkunni á næsta tímabili"

"Mig langar að nýta tækifærið og þakka öllu því góða fólki sem hefur verið í kringum Þór handbolta í gegnum tíðina - þjálfurum, samherjum, sjálfboðaliðum og öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum. Það hefur verið mikill heiður fyrir mig að fá að vera fyrirliði liðsins undanfarin tímabil og fá að leiða þennan hóp. Ég tek með mér fullt af góðum minningum og er þakklátur fyrir þann tíma sem ég hef átt í handboltanum"

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top