Arnór Atlason, þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins TTH Holstebro, hefur í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um stöðu Benedikts Gunnars Óskarssonar eftir hið alvarlega slys sem hann lenti í fyrr í þessum mánuði. Handkastið greindi frá því í gær að Benedikt Gunnar hefði orðið fyrir óhugnanlegu slysi þegar hann fékk golfkúlu í höfuðið á meðan hann lék golf í sumarfríi sínu á Íslandi. Við höggið sprakk höfuðkúpan og blæðing varð inn á heila sem leiddi til þess að hann missti allan mátt í hægri hendinni. Benedikt Gunnar lenti í óhugnanlegu atviki á golfvellinum Arnór segir að það skipti öllu máli að Benedikt fái næði til að jafna sig og að félagið hafi fylgst grannt með bataferlinu frá fyrstu stundu. „Eini fókusinn okkar núna er að Benedikt nái sér að fullu og á sem bestan hátt. Hann er í góðum höndum á Íslandi og er smám saman að taka líkamlegum framförum. Tilfinningin í hendinni verður sífellt betri og betri. Endurhæfingin er komin á fullt skrið og hann fær meðferð þrisvar í viku. Við fylgjumst náið með þróuninni og vonum það besta fyrir Benedikt,“ sagði Arnór Atlason. Benedikt gekk í raðir TTH Holstebro í sumar eftir tvö tímabil hjá norska stórliðinu Kolstad en hann hefur enn ekki getað hafið æfingar með nýja félaginu vegna slyssins. Í samtali við Handkastið í gær sagði Benedikt að fyrstu dagarnir eftir slysið hefðu verið afar erfiðir, ekki síst eftir að læknar gátu ekki gefið nein fyrirheit um hvort mátturinn í hægri hendinni myndi snúa aftur. Hann hefur hins vegar tekið miklum framförum undanfarna daga og vikur. Endurhæfing hans fer fram á Grensási þar sem hann sækir meðferð þrisvar í viku. Hann hefur þegar náð að hreyfa fingurna á ný, er byrjaður að hjóla og segir sjálfur að daglegar framfarir gefi sér aukna bjartsýni. TTH Holstebro hefur frá upphafi sýnt Benedikti mikinn stuðning og hvatt hann til að dvelja á Íslandi á meðan endurhæfingin stendur yfir. Að sögn Benedikts taldi félagið að hann væri í bestu mögulegu höndum á Grensási og lagði áherslu á að hann sneri ekki til Danmerkur fyrr en heilsan leyfði. Þrátt fyrir að óvissa ríki enn um hvenær Benedikt geti snúið aftur inn á handboltavöllinn eru bæði læknar og TTH Holstebro sífellt bjartsýnni á bataferlið, en fyrstu merkin um aukinn mátt og tilfinningu í hendinni hafa vakið von um að Benedikt Gunnar nái fullum bata.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.