Íslenska U20 ára karla landsliðið svaraði vel fyrir tapið gegn Noregi í gær með sannfærandi 35-23 sigri á Ísrael í krossspili um sæti 13.-16. sætið á Evrópumótinu sem fram fer í Rúmeníu. Ísland hafði yfirhöndina frá upphafi til enda og var komið með ellefu marka forskot í hálfleik, 20-9. Munurinn hélst áfram í seinni hálfleik þar sem íslenska liðið stjórnaði leiknum af öryggi. Stefán Magni Hjartarson, sem sneri aftur eftir veikindi, varð markahæstur með sjö mörk. Jens Bragi Bergþóruson skoraði sex mörk og Ingvar Dagur Gunnarsson fimm. Alexander Ásgrímsson átti frábæran leik í markinu með rúmlega 51% markvörslu, en Jens Sigurðarson lagði einnig sitt af mörkum með um 35% markvörslu. Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska liðsins, var mjög ánægður með viðbrögð leikmanna eftir vonbrigðin í leiknum á undan. „Ég er mjög ánægður með frammistöðuna hjá strákunum í dag. Þeir nálguðust verkefnið af mikilli fagmennsku og við mættum af fullum krafti og gerðum þetta vel,“ sagði Ágúst. Hann hrósaði sérstaklega varnarleiknum og markvörslunni sem lögðu grunninn að öruggum sigri. „Varnarleikurinn var mjög góður og markvarslan einnig og þar af leiðandi náðum við að keyra vel á þá. Við vorum að klára færin vel og skiluðum okkur vel til baka. Við unnum sannfærandi og góðan sigur. Nálgunin á verkefnið var mjög fagleg og strákarnir voru yfirvegaðir og einbeittir.“ Íslenska liðið leikur um 13. sætið á sunnudaginn gegn annað hvort Króatíu eða Rúmeníu og segir Ágúst að áherslan næstu klukkustundir verði á endurheimt. „Við nýtum morgundaginn til að hvíla okkur og hlaða batteríin og við gerum allt sem við getum til að vera klárir í lokaleikinn á sunnudaginn, þar sem við spilum annað hvort gegn Króatíu eða Rúmeníu.“ Það skýrist á næstu klukkutímanum hvort liðið Ísland mætir en leikur Króatíu og Rúmeníu var að hefjast.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.