Dagana 12.–15. ágúst fer hið árlega Opna Norðlenska fram í KA-heimilinu á Akureyri. Í karlaflokki taka KA, Þór og ÍR þátt í mótinu, en í kvennaflokki verða það KA/Þór, ÍR og Afturelding sem mætast. Karlalið ÍR leikur í Grill66-deildinni á næstu leiktíð og kvennalið Aftureldingar einnig. Annars leika hin þrjú félögin í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Mótið hefst miðvikudaginn 12. ágúst þegar KA og Þór eigast við í Akureyrarslag sem hefst klukkan 19:00. Á fimmtudeginum mætast KA/Þór og Afturelding í fyrsta leik kvenna megin. Tveir leikir verða síðan á dagskrá föstudaginn 14. ágúst. Klukkan 18:00 mætast KA/Þór og ÍR í kvennaflokki áður en Þór og ÍR eigast við í karlaflokki klukkan 20:00. Mótinu lýkur laugardaginn 15. ágúst með tveimur leikjum. KA og ÍR mætast í karlaflokki klukkan 11:30 og í lokaleik mótsins eigast ÍR og Afturelding við í kvennaflokki klukkan 13:30. Miðvikudagur 12. ágúst Fimmtudagur 13. ágúst Föstudagur 14. ágúst Laugardagur 15. ágústDagskrá Opna Norðlenska

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.