Samkvæmt heimildum Handkastsins er Afturelding í leit að styrkingu á karlaliði sínu fyrir komandi tímabil í Olís-deild karla. Samkvæmt sömu heimildum leitar félagið að erlendum leikmanni sem getur fyllt skarð Ágústs Inga Óskarssonar, sem rifti samningi sínum við Aftureldingu og gekk í raðir Íslands- og deildarmeistara Vals. Hrannar Guðmundsson hefur tekið við þjálfun liðsins af Stefáni Árnasyni. Honum til aðstoðar verður Ingimundur Ingimundarson. Félagið hefur þegar styrkt leikmannahóp sinn með komu Hans Jörgen Ólafssonar og Hákons Daða Styrmissonar. Ljóst er að metnaður er til staðar í herbúðum Aftureldingar og samkvæmt heimildum Handkastsins vilja Mosfellingar bæta enn frekar við hópinn áður en keppni hefst. Afturelding hefur því ekki lokað leikmannamálum sínum og vinna stendur yfir við að finna erlendan leikmann sem getur styrkt liðið fyrir átökin í Olís-deildinni. Afturelding hefur leik í Olís-deild karla þegar liðið tekur á móti nýliðunum í Víkingi í Myntkaup-höllinni fimmtudaginn 3. september. Flautað verður til leiks klukkan 18:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.