Torfi Geir í HK

HK hefur samið við Torfa Geir Halldórsson um að ganga til liðsins frá Fram. Samningurinn er til eins árs.

Torfi er fæddur árið 2004 og uppalinn í Fram. Í yngri flokkum á sínum tíma var hann einn allra efnilegasti leikmaður landsins.

Hann ákvað að velja fótbolta á unglingsaldri þar sem hann lék í stöðu markvarðar en fyrir rúmu 1 ári ákvað hann að segja skilið við fótboltann og snúa sér aftur að handbolta.

Torfi er eins og einhverjum ætti að vera kunnugt um, sonur þjálfara HK, Halldórs Jóhanns Sigfússonar. Hann spilar sem skytta og þykir öflugur varnarmaður.

"Torfi er metnaðarfullur og kraftmikill leikmaður sem HK bindur miklar vonir við. Það ríkir mikil ánægja innan félagsins með komu hans og við hlökkum til að sjá hann leggja sitt af mörkum í HK búningnum á komandi tímabili" segir í tilkynningu frá HK í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top