Útilokar endurkomu – Ekkert til í þessu
Egill Bjarni Friðjónsson

Rúnar Kárason sem lagði handboltaskóna á hilluna í vor eftir þrjú tímabil með uppeldisfélagi sínu Fram. Með félaginu varð hann Íslands- og bikarmeistari tímabilið 2024/2025.

Rúnar hóf ferilinn með Fram en fór 21 árs gamall í atvinnumennsku til Fuchse Berlín í Þýskalandi. Hann lék einnig með Bergischer, Grosswallstadt, Rhein-Neckar Löwen og Hannover Burgdorf á tíu árum þar í landi, frá 2009 til 2018.

Þaðan fór hann til Ribe-Esbjerg í Danmörku áður en hann sneri heim og gekk í raðir ÍBV. Hann varð Íslandsmeistari með ÍBV tímabilið 2022/2023 og fór í kjölfarið til Fram þar sem hann lék þrjú tímabil.

Á dögunum var Rúnar Kárason orðaður við endurkomu á vefsíðunni Harpix.is en þar var sagt frá því að Rúnar væri að íhuga að taka fram skóna á nýjan leik. Rúnar gat ekki annað en leiðrétt þessar fréttir og það gerði hann með færslu á Instagram sögu (e.story)

,,Þessir heimildamenn þekkja mig greinilega ekki neitt. Það er ekkert til í þessu,” skrifaði Rúnar við færslu sína.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top