U18 ára landslið karla í handbolta vann tvo vináttulandsleiki gegn Færeyjum um síðustu helgi. Leikirnir fóru fram í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi og voru mikilvægur liður í undirbúningi liðsins fyrir Evrópumótið sem hefst í Serbíu í næstu viku. Andri Sigfússon, einn af þjálfurum íslenska liðsins, segir leikina hafa skilað miklu fyrir hópinn. „Vináttuleikirnir gegn Færeyingum voru mjög góð æfing fyrir það sem fram undan er í Serbíu. Við gátum prófað ýmsa hluti og mátað okkur við aðstæður sem gætu komið upp á Evrópumótinu. Við lékum bæði 6-0 og 5-1 varnir og þær komu báðar vel út. Færeyingarnir eru mjög teknískir og vel leikandi og þeir létu okkur hafa mikið fyrir hlutunum, sem er einmitt það sem við vildum.“ Þrátt fyrir góðan árangur segir Andri að enn sé verk að vinna áður en mótið hefst. „Við erum langt frá því að vera fullmótaðir fyrir Evrópumótið, þrátt fyrir að stór hluti hópsins hafi leikið saman á Ólympíuleikum Evrópuæskunnar síðasta sumar og á Sparkassen Cup milli jóla og nýárs. Við eigum eftir að fínpússa margt í þessari viku áður en við höldum af stað.“ Ísland verður í sterkum riðli á Evrópumótinu þar sem liðið mætir Ungverjalandi, Sviss og Svartfjallalandi. „Strákarnir eru flottir og mjög viljugir. Við hlökkum mikið til verkefnisins en við vitum að riðillinn verður krefjandi. Við þurfum að vera vel undirbúnir og tilbúnir í slaginn þegar mótið hefst.“ Heilsufar leikmannahópsins er almennt gott. Freyr Aronsson fékk lítið bakslag í hægri öxl á æfingu í síðustu viku en er á góðri leið með að ná fullum bata og lék seinni vináttulandsleikinn gegn Færeyjum á sunnudag. Gunnar Róbertsson fékk högg á litlafingur vinstri handar í síðari leiknum, en fingurinn reyndist óbrotinn og aðeins lítillega bólginn. Gert er ráð fyrir að hann verði orðinn góður á næstu dögum. Að sögn Andra eru aðrir leikmenn heilir heilsu og í toppformi fyrir komandi Evrópumót.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.