Landsliðskonan, Lovísa Thompson hefur verið kynnt sem nýr leikmaður Benfica í Portúgal og gengur hún í raðir félagsins frá þreföldum meisturum Vals. Lovísa hefur verið orðuð við Benfica undanfarna mánuði og nú hefur portúgalska félagið loks tilkynnt komu landsliðskonunnar. Benfica hafa orðið portúgalskir meistarar fimm síðustu tímabil. Lovísa sem er uppalin hjá Gróttu var valin mikilvægasti leikmaður úrslitakeppni Olísdeildarinnar á síðustu leiktíð en Valur hafði betur gegn ÍBV í úrslitaeinvíginu 3-1. Hún hefur leikið með Val undanfarin ár en meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá henni en hún átti hinsvegar frábært tímabil með Val á síðustu leiktíð og var þeirra lang besti leikmaður, bæði varnar og sóknarlega. Lovísa er þriðji leikmaður Vals sem fer í atvinnumennsku í sumar en áður höfðu þær Lilja Ágústsdóttir og Thea Imani Sturludóttir yfirgefið Val og farið í atvinnumennsku. Handkastið sagði frá því í byrjun maí að Lovísa væri á leið til Benfica og því hafa félagaskiptin legið lengi í loftinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.