Susan Ines Barinas leikmaður Aftureldingar í Grill66-deildinni er um þessar mundir í eldlínunni með landsliði Venesúela á Mið-Ameríku og Karíbahafsleikunum. ,,Það er gaman að segja frá því að Susan Ines Barinas leikmaður meistaraflokks kvenna er um þessar mundir að keppa með landsliði Venezuela á Mið-Ameríku og Karíbahafsleikunum í Santo Domingo," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu á samfélagsmiðla síðu félagsins. Þar segir jafnframt að Susan sé næst markahæsti leikmaður mótsins með 13 mörk eftir tvo leiki en Venesúela hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu gegn Dóminíska lýðveldinu og Púertó Ríkó. Liðið mætir landsliði Nucaragua í kvöld klukkan 19:00 í lokaleik sínum í riðlinum. Susan hefur nýverið skrifað undir nýjan samning við Aftureldingu en hún hefur leikið með liðinu undanfarin ár en hún er 36 ára og einn reynslu mesti leikmaður Grill66-deildarinnar. Gamboa flutti fyrst til Akureyrar árið 2018 þar sem vinkona hennar bjó og lék blak með KA. Gamboa reyndi fyrir sér í handboltanum á Akureyri en handboltaferill hennar fór ekki á flug hér á landi fyrr en hún flutti til Reykjavíkur og byrjaði að æfa með Aftureldingu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.