Freyr og Gunnar á lista yfir markahæstu menn EM
EHF

Keppni á U18 Evrópumóti karla í handbolta stendur nú sem hæst í Serbíu og baráttan um markakóngstitilinn er farin að harðna þegar komið er vel inn í mótið.

Færeyska stórskyttan Boas Ellefsen á Skipagøtu, sem lengi vel leiddi markalistann, hefur nú fallið niður í þriðja sæti eftir að tveir leikmenn fóru fram úr honum.

Í efsta sæti er nú Yonathan Pelach frá Ísrael með 56 mörk. Pelach tók forystuna með því að skora 14 mörk gegn Sviss og önnur 14 gegn Svartfjallalandi í milliriðlinum.

Skammt á eftir honum er Jakub Valent frá Slóvakíu með 48 mörk, en hann skoraði 10 mörk gegn Austurríki og 13 gegn Finnlandi.

Hinn færeyski, Boas hefur skorað 44 mörk og er áfram í harðri baráttunni um markakóngstitil mótsins.

Tveir íslenskir leikmenn eru einnig á meðal 25 markahæstu leikmanna mótsins. Freyr Aronsson er í 12. sæti með 28 mörk og Gunnar Róbertsson í 19. sæti með 23 mörk.

Íslenska liðið verður í eldlínunni á morgun klukkan 15:00 þegar liðið mætir Þýskalandi í 8-liða úrslitum mótsins.

Hér að neðan má sjá lista yfir markahæstu leikmenn mótsins.

SætiLeikmaðurÞjóðMörk
1Yonathan PelachÍsrael56
2Jakub ValentSlóvakía48
3Boas Ellefsen á SkipagøtuFæreyjar44
4Danilo GutićSvartfjallaland36
4Emil Kvistgaard BakeryDanmörk36
6Jaka PodvrsicSlóvenía34
7Boban PopovskiNorður-Makedónía33
8Bence AmbrusUngverjaland32
9Adrian Sola BasterraSpánn31
10Markus KelihAusturríki29
10Theodor Klarskov KnudsenDanmörk29
12Freyr AronssonÍsland28
13Hannes CarlssonSvíþjóð26
13Nuno Sousa MarquesPortúgal26
15Geva DganiÍsrael25
16Roberto Lucas PittKróatía24
16Vincent FaciejewÞýskaland24
16Filip BlecicSerbía24
19Gunnar RóbertssonÍsland23
19Luka KaludjerovicSvartfjallaland23
19Zalan Juhasz-TothUngverjaland23
22David BajanKróatía22
22Isaac SaillardFrakkland22
24Mateusz TkaczykPólland21
25Trajche KostovNorður-Makedónía21

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top