Tymon Ponto verður áfram hjá Víði í Garði

Tymon Ponto hefur framlengt samningi sínum við Víðismenn sem leika í fyrsta sinn í Grill 66 deildinni í vetur.

Tymon var markahæstur hjá Víði á síðasta leiktímabili í 2. deild karla þegar þeir lentu í 2. sæti í deildinni. Skoraði hann 95 mörk í 13 leikjum.

"Mér líður vel hér og langaði að halda áfram með þessum hópi. Við erum að byggja upp eitthvað spennandi og ég vil vera hluti af því. Ég ætla mér að halda áfram að leggja mitt af mörkum, skora mörk og hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum“ segir Tymon Ponto í tilkynningu frá Víðismönnum í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top