Veðrið setur strik í reikninginn – Leik Vals seinkað
Baldur Þorgilsson

Veður og seinkaðar flugferðir hafa sett verulegt strik í reikninginn á Wenzel Nordic Cup æfingamótið sem hefst í Færeyjum í dag. Þar eru Íslands- og deildarmeistarar Vals meðal fjögurra keppnisliða.

Leik Kiel og H71, sem átti að fara fram í kvöld, hefur verið aflýst þar sem þýska stórliðið náði ekki að lenda í Færeyjum í tæka tíð fyrir leikinn. Þá þurftu Valsmenn að millilenda í Bergen í gær þar sem flugvél þeirra gat ekki lent í Færeyjum.

Valsliðið er hinsvegar komið til Færeyja og leikur gegn GOG í dag en leiknum hefur verið seinkað til 19:00 í kvöld og verður því eini leikur dagsins á mótinu.

Elias Ellefsen á Skipagøtu og félagar hans hjá Kiel þurfa því að bíða lengur eftir því að hefja keppni á mótinu. Skipuleggjendur mótsins hafa beðist velvirðingar á breytingunum og segja að veðuraðstæður og seinkaðar flugferðir séu alfarið utan þeirra stjórnunar.

Stefnt er að því að leikir morgundagsins fari fram samkvæmt upphaflegri dagskrá, en endanleg dagskrá verður staðfest síðar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top