Við höldum áfram að kíkja á gamlar bakhliðinar meðan leikmenn eru á fullum undirbúningi fyrir nýtt keppnnistímabil. Fyrir um ári síðan sýndi einn nýjasti atvinnumaður okkar Garðar Ingi Sindrason á sér bakhliðina en hann var þá leikmaður FH en samdi við Gummersbach í vor og mun leika með þeim í vetur. Sjáum hvað Garðar Ingi hafði að segja fyrir um ári síðan þegar Handkastið heyrði í honum. Fullt nafn: Garðar Ingi Sindrason Gælunafn: Alltaf verið kallaður Gassi Aldur: 17 ára [+1 ár í dag, innskot blaðamanns] Hjúskaparstaða: Lausu Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2022 í KA heimilinu Uppáhalds drykkur: Kalt pepsi max klikkar ekki Uppáhalds matsölustaður: Hornið Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Prison Break Uppáhalds tónlistarmaður: Birnir og Drake Uppáhalds hlaðvarp: Doctor Football Uppáhalds samfélagsmiðill: Því miður er það TikTok Frægasti fylgjandinn þinn á Instagram: Aron Pálmarsson, frændi Fyrsta verk ef þú yrðir formaður HSÍ: Hugsa ég myndi reyna lækka kostnað á yngri landsliðin Hvað ertu að meðaltali mikið í símanum á dag: 5 tímar Fyndnasti Íslendingurinn: Hjörvar Hafliða Hvernig hljóma síðustu skilaboðin þín til þjálfarans þíns: Ég spurði “Hvenær spilaði ég minn fyrsta meistarflokksleik ?” Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Haukum Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Julian Köster eða Mahe Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Steini Arndal og Einar Andri Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Magnús Dagur Jónatanson, frábær manneskja utan vallar en þvílíka kvikindið inna vellinum Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Aron Pálmarsson og bróðir minn, Einar Sindra Helsta afrek á ferlinum: Deildarmeistari með FH og efnilegastur í Olís Mestu vonbrigðin: Tapa leiknum um bronsið með landsliðinu síðasta sumar var súrt Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Andri Erlingsson Efnilegasti handboltamaður/kona landsins: Narfi Arndal og Bergrós Ásta Besti handboltamaðurinn frá upphafi: Aron Pálmarsson Ein regla í handbolta sem þú myndir breyta: Myndi testa skotklukkuna Þín skoðun á 7 á 6: Þreytt að horfa a það en fínt að grípa í ef það er einhvað bras sóknarlega Hver er þín fyrsta minning af handbolta: Horfa á Einar bróðir minn spila í yngri flokkum Í hvernig handboltaskóm spilar þú: Adidas Crazyflight Hvaða þrjá handbolta leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju, og af hverju: Tæki Ágúst Guðmundsson mikill stemningsmaður, Daníel Mána Sigurgeirsson gæti reynst okkur vel varðandi það að koma okkur mögulega upp á land og svo myndi ég taka Elís Þór Aðalsteinsson það er alvöru steik. Ólíklegir að lifa af en það væri gaman Hvaða lag kemur þér í gírinn: Somebody to love með Biebernum Rútína á leikdegi: Reyni að stytta skóladaginn aðeins og alltaf pasta hjá mömmu fyrir leik Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í Love Island: Ingvar Dagur eða Jakob Martin, hugsa þeir væru bara flottir saman þarna Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ólýsanlega góður í upphitunar fótboltanum Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Ágúst Birgisson algjör toppmaður, hrikalegt að missa hann úr klefanum

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.