

Norska kvennaliðið, Romerike Ravens hefur ákveðið að draga lið sitt úr 1. deild norska handboltans með tafarlausum hætti vegna erfiðrar fjárhagsstöðu. Félagið greinir sjálft frá ákvörðuninni á heimasíðu sinni og samfélagsmiðlum. Í yfirlýsingu stjórnar kemur fram að ekki hafi tekist að tryggja nægilega fjárhagslegan grundvöll til að halda úti metnaðarfullu liði í deildinni. Marte Syverud sem lék með Selfossi á síðustu leiktíð skrifaði nýverið undir samning við félagið og ætlaði að leika með liðinu á komandi tímabili. Romerike Ravens var stofnað árið 2021 þegar afreksstarf Rælingen HK var slitið frá félaginu og Ravens stofnað sem sérstakt úrvalslið fyrir Romerike-svæðið. Liðið lék í REMA 1000-deildinni á síðustu leiktíð en féll úr deildinni á síðasta tímabili. „Stjórn Romerike Ravens hefur því miður séð sig knúna til að draga liðið úr keppni í 1. deild með tafarlausum hætti. Ákvörðunin er tekin vegna fjárhagsstöðu félagsins og skorts á útlitum fyrir að hægt sé að byggja upp nægilega traustan fjárhagsgrundvöll fyrir áframhaldandi rekstur,“ segir í yfirlýsingunni. Ef marka má samfélagsmiðla liðsins þá hefur liðið verið í óða önn að undirbúa sig fyrir komandi tímabil. Liðið hefur tekið þátt í æfingamótum og í júlí hafa leikmenn verið kynntir sem nýir leikmenn í liðinu. Laust sæti Romerike Ravens í 1. deild verður boðið því liði sem náði bestum árangri í umspili 2.deildarinnar án þess að hafa tryggt sér sæti í 1.deildinni. Það lið er HK Rygge, félagið hefur þó ekki gefið út hvort það mun þiggja sæti í 1.deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.