HSG Blomberg-Lippe vann Borussia Dortmund í þýska Ofurbikarnum í kvennaflokki í dag eftir æsispennandi leik í SAP Garden í München. Blomberg-Lippe hafði betur 26–24 eftir vítakeppni. Staðan var jöfn, 9–9, í hálfleik og eftir 60 mínútur var enn jafnt 22–22. Því þurfti vítakeppni til að knýja fram úrslit. Þar hafði Blomberg-Lippe sterkari taugar og vann vítakeppnina 4–2. Þetta er fyrsti Ofurbikartitillinn í sögu Blomberg-Lippe og annar titill félagsins á árinu eftir að liðið varð þýskur meistari í fyrsta sinn síðasta vor. Markvörðurinn Nicole Roth átti stóran þátt í sigrinum og hélt Blomberg-Lippe á floti með mikilvægum vörslum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Nieke Kühne og Nuria Bucher voru markahæstar hjá Blomberg með sex mörk hvor. Díana Dögg Magnúsdóttir kom við sögu hjá Blomberg-Lippe og skoraði eitt mark. Elín Rósa Magnúsdóttir var hins vegar ekki í leikmannahópi liðsins í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.