Katrín Tinna með fullkomna nýtingu í sigri
Kristinn Steinn Traustason

Línumaðurinn, Katrín Tinna Jensdóttir sem gekk í raðir Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í sumar frá ÍR var með fullkomna nýtingu í sigri Horsens gegn HØJ í 2.umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í gær á útivelli.

Katrín Tinna skoraði fjögur mörk úr öllum fjórum skotum sínum í leiknum en Horsens vann leikinn 30-34 en heimakonur í HØJ voru 14-13 yfir í hálfleik.

Það var jafnt á flestum tölum í seinni hálfleik allt þar til í stöðunni 29-29 en þá komu fjögur mörk í röð frá Horsens og sem gerðu út um leikinn og unnu að lokum eins og fyrr segir, fjögurra marka sigur 30-34.

Horsens tapaði illa í fyrstu umferðinni 21-33 gegn Viborg og var þetta því kærkominn sigur fyrir liðið. Katrín Tinna skoraði tvö mörk úr þremur skottilraunum í þeim leik og hefur því skorað sex mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum í dönsku úrvalsdeildinni til þessa.

Liðið mætir Sonderjyske í næst umferð strax á miðvikudaginn en Sonderjyske er líkt og Horsens með tvö stig eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top