Lovísa skoraði tvö í 34 marka sigri Benfica
Benfica

Benfica hóf titilbaráttuna í portúgölsku úrvalsdeild kvenna með látum þegar liðið vann Feirense 46–12 í gær.

Benfica tók öll völd á leiknum frá upphafi og leiddi 22–5 í hálfleik. Munurinn hélt áfram að aukast í seinni hálfleik og að lokum munaði alls 34 mörkum á liðunum.

Lovísa Thompson lék sinn fyrsta deildarleik fyrir Benfica eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Val í sumar. Hún kom sér á blað í leiknum og skoraði tvö mörk úr tveimur skotum.

Maria Santos var markahæst hjá Benfica með átta mörk, en Ana Silva skoraði sex og Patrícia Rodrigues, Line Ellertsen og Nora Leitner skoruðu fimm mörk hver.

Ekki besta byrjunin fyrir Feirense sem eru nýliðar í portúgölsku úrvalsdeildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top