Thea skoraði í jafntefli – Elmar með fjögur í sigri
FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP)

Thea Imani Sturludóttir skoraði eitt mark þegar SCM Craiova gerði 32-32 jafntefli við CSM Slatina í fyrstu umferð rúmensku úrvalsdeildarinnar í gær.

Thea, sem gekk til liðs við Craiova frá Val í sumar, byrjaði leikinn og skoraði mark snemma í leiknum þegar Craiova komst í 4-3. Hún kom þó ekki meira við sögu í markaskorun í leiknum.

Craiova leiddi 17-14 í hálfleik og var með þriggja marka forskot, 29-26, þegar um tíu mínútur voru eftir. Slatina gafst þó ekki upp og jafnaði metin á lokamínútunni. Lokatölur urðu því 32-32.

Þetta var fyrsti deildarleikur Theu með Craiova eftir félagaskiptin frá Val í sumar.

Elmar með fjögur í góðum útisigri

Elmar Erlingsson skoraði fjögur mörk þegar Nordhorn-Lingen hóf keppni í þýsku 2. deildinni með 32-29 útisigri á TuSEM Essen.

Nordhorn var með yfirhöndina frá upphafi og leiddi 18-15 í hálfleik. Essen minnkaði muninn í eitt mark í síðari hálfleik en gestirnir héldu haus og tryggðu sér góðan sigur.

Elmar var líflegur í sókninni og skoraði fjögur mörk. Hann skoraði tvívegis á stuttum kafla í síðari hálfleik og kom Nordhorn meðal annars í 21-20 og 22-21.

Tarek Marschall var markahæstur hjá Nordhorn með 11 mörk en Maximilian Lux skoraði sex mörk. Hjá Essen skoruðu Felix Eißing og Felix Göttler sex mörk hvor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top