Þýskalandsmeistarar Blomberg-Lippe eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðir þýsku úrvalsdeildarinnar eftir öruggan 40-28-sigur á Metzingen í gær. Heimakonur þurftu þó að hafa töluvert fyrir sigrinum í fyrri hálfleik áður en þær stigu verulega á bensínið eftir hlé. Metzingen byrjaði af krafti og Blomberg náði aldrei að hrista gestina almennilega af sér í fyrri hálfleik. Heimakonur voru þó með frumkvæðið lengst af og leiddu meðal annars 11-9 eftir stundarfjórðung. Gestirnir svöruðu hins vegar og jöfnuðu metin í 14:14. Blomberg náði síðan að taka frumkvæðið á nýjan leik og fór með 19-16 forystu inn í hálfleik. Eftir hlé varð allt annað upp á teningnum. Blomberg-Lippe skoraði fjögur fyrstu mörk síðari hálfleiks og náði fljótt fimm marka forskoti, 23:17. Vörnin small betur saman og markvörðurinn Nicole Roth reyndist Metzingen erfiður ljár í þúfu. Þegar Blomberg komst í 26:18 var ljóst að leikurinn var að færast úr jafnræðinu sem einkenndi fyrri hálfleikinn. Fimmtán mínútum fyrir leikslok var munurinn orðinn tíu mörk, 32:22, og þaðan í frá var sigurinn aldrei í hættu. Blomberg gat því leyft sér að rótera hópnum á lokakaflanum og vann að lokum með tólf marka mun, 40:28. Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Blomberg-Lippe og Elín Rós Magnúsdóttir skoraði fimm. Auk þess fiskaði Elín Rósa nokkur víti og gaf þrjár stoðsendingar. Díana var öflug á lokakaflanum og skoraði tvö síðustu mörk leiksins þegar Blomberg-Lippe innsiglaði tólf marka sigur. Markahæst Blomberg-Lippe var hins vegar Nuria Bucher með tíu mörk og Nieke Kühne kom næst með sex. Alexia Hauf skoraði fimm, líkt og Elín. Hjá Metzingen var Johanna Farkas markahæst með níu mörk. Næsta verkefni Íslendingaliðsins verður svo afar áhugavert en liðið hefur sögulegt verkefni fram undan í Meistaradeild Evrópu, þar sem félagið leikur þar í fyrsta sinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.