Meistaradeild Evrópu fer af stað á miðvikudaginn og verður keppnin með töluvert öðru sniði en undanfarin ár. Liðunum hefur verið fjölgað úr 16 í 24 og íslenskir handboltaáhugamenn hafa nóg að fylgjast með enda fjölmargir Íslendingar í eldlínunni hjá stærstu félagsliðum Evrópu. Stærsta breytingin er riðlakeppnin. Liðunum 24 hefur verið skipt í sex fjögurra liða riðla og leika liðin heima og að heiman, samtals sex leiki hvert. Tvö efstu lið hvers riðils halda áfram í milliriðla Meistaradeildarinnar en liðin sem enda í þriðja og fjórða sæti færast niður í Evrópudeildina. Keppnin hefst á morgun og strax fyrsta kvöldið eru nokkrir afar áhugaverðir leikir á dagskrá. Veszprém, Füchse Berlin, Porto og Partizan Þorsteinn Leó Gunnarsson og félagar í Porto fá verðugt verkefni strax í 1. umferð þegar þeir heimsækja Veszprém. Füchse Berlin, sem lék til úrslita í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð, byrjar hins vegar keppni á fimmtudaginn með útileik gegn Partizan í Belgrad. Nantes, Melsungen, Wisła Płock og Vardar B-riðillinn er gríðarlega jafn á pappírnum og þar verður sömuleiðis íslenskt yfirbragð. Nantes, Evrópudeildarmeistarar Melsungen og pólsku meistararnir Wisła Płock eru meðal liðanna sem berjast um tvö sæti áfram ásamt Vardar frá Norður-Makedóníu. Með Melsungen leikur Reynir Þór Stefánsson. Álaborg, Paris Saint-Germain, Zagreb og Celje Álaborg fær strax stórleik í 1. umferð þegar franska stórliðið Paris Saint-Germain kemur í heimsókn til Álaborgar á miðvikudaginn. Álaborg komst alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili og verður aftur eitt þeirra liða sem gera atlögu að sæti í Final4. Með Paris Saint-Germain leikur landsliðsmaðurinn, Bjarki Már Elísson. Sporting, Pick Szeged, GOG og Kristianstad Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting eru í áhugaverðum riðli með Pick Szeged, GOG og sænska liðinu Kristianstad. Sporting hefur verið á mikilli uppleið undanfarin ár og verður spennandi að sjá hvort portúgalska liðið geti tekið næsta skref á meðal þeirra bestu í Evrópu. Sporting mætir GOG í 1.umferðinni á meðan Íslendingalið, Kristianstad heimsækir Pick Szeged. Með Kristianstad leika, Ólafur Guðmundsson, Einar Bragi Aðalsteinsson, Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason. Aðstoðarþjálfari liðsins er síðan, Gunnar Steinn Jónsson. Barcelona, Montpellier, Dinamo Búkarest og Skanderborg Janus Daði Smárason og Viktor Gísli Hallgrímsson hefja Meistaradeildina með ríkjandi meisturum Barcelona. Barcelona byrjar titilvörnina á heimavelli gegn nýliðum SAH á miðvikudagskvöld. Með Skanderborg leikur Kristján Örn Kristjánsson. Magdeburg, Kielce, Kolstad og Kriens-Luzern Gera má fastlega ráð fyrir því að Magdeburg og Kielce fari auðveldlega uppúr F-riðli keppninnar. Magdeburg heimsækir Kolstad í 1.umferðinni. Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson eru í herbúðum Magdeburg. Magdeburg hefur farið vel af stað í Þýskalandi þrátt fyrir að Ómar Ingi hafi misst af síðustu tveimur leikjum vegna veikinda. Það verður því sérstaklega áhugavert að sjá hvort landsliðsfyrirliðinn verði klár í slaginn þegar Meistaradeildin hefst. Kielce og Kriens-Luzern eru hin liðin í riðlinum en svissneska liðið er að leika í Meistaradeildinni í fyrsta sinn. Aðeins tvö af fjórum liðum hvers riðils halda áfram í Meistaradeildinni og riðlakeppninni lýkur strax 29. október. Þá taka milliriðlarnir við í nóvember áður en keppnin færist nær útsláttarkeppninni og að lokum Final4. Fyrsta umferðin hefst klukkan 16:45 að íslenskum tíma á miðvikudaginn. Meðal fyrstu leikja eru Veszprém–Porto, Aalborg–PSG, Zagreb–Celje og Kielce–Kriens-Luzern. Það verður því strax nóg að fylgjast með fyrir íslenska handboltaáhugamenn þegar nýtt tímabil í stærstu félagsliðakeppni heims fer af stað. Meistaradeildin er sýnd í beinni á Livey.A-riðill
B-riðill
C-riðill
D-riðill
E-riðill
F-riðill
Gjörbreytt leið að Final4

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.